Innskráning
Taubleiur

        


 

Taubleiunotkun hefur farið ört vaxandi hér á landi eins og annars staðar í Evrópu, USA og Ástralíu og ekki að ástæðulausu. Aðallega má nefna þrjár megin ástæður fyrir því afhverju ætti að velja taubleiur fram yfir bréfbleiur og þær eru: Betra fyrir barnið, umhverfisvænni og sparnaður fyrir budduna og  ekki skemmir hvað þær eru sætar!!!!

Börn sem nota taubleiur fá síður, útbrot, ofnæmi og sveppasýkingu á bleiusvæði. Taubleiur eru einnig mun mýkri og þægilegri viðkomu en bréfbleiur.

Taubleiur eru mun umhverfisvænni en bréfbleiur. Áætlað er  að hvert barn noti að lágmarki ca. 5000 bleiur á bleiutímabilinu (miðað við  2 ára tímabil )sem gerir ca. eitt og hálft tonn af rusli. Hver bleia tekur um 500 ár að eyðast í umhverfinu.

Þú sparar mikinn pening með því að nota taubleiur eða á milli kr. 100.000,- og kr. 200.000,- og jafnvel enn meiri ef taubleiurnar eru notaðar á annað barn. Einnig er hægt að selja notaðar taubleiur.


Vasableiur (Pocket diapers) eru byggðar upp þannig að vasi er á milli ytra og innra byrðis fyrir rakadræg innlegg. Ytra byrði er yfirleitt úr vatnsheldu efni en innra byrði úr fleece, suedecloth, velour ofl.

Helstu kostir: þú getur ráðið rakadrægni bleiunnar eftir fjölda/gerða innleggja og svo eru þær mjög fljótar að þorna.

One Size (ein stærð) bleiur stækka með barninu og nýtast frá fæðingu og út bleiutímabilið. One Size taubleiur eru hagkvæmastar fyrir budduna. Þú færð þrjár til fjórar mismunandi stærðir í einni bleiu (xsmall), small, medium og large.
Helsti kostur: Hagkvæmt  

AIO (Allt í einni) bleiur eru auðveldastar í notkun og líkjast mest bréfbleium. Innleggið er annaðhvort falið inní bleiuna eða saumað/smellt fast við bleiuna. Ysta lag er vatnshelt og innra  úr mjúku bómullar, hamp, bambus eða öðru náttúrulegu efni. Bleian er tilbúin til notkunar eins og hún er.
Helsti kostur: Eru mjög einfaldar í notkun og því mjög leikskólavænar bleiur.
Fitted (sniðin) bleiur eru yfirleitt úr bómul, hampi, bambus eða velúr eða einhversskonar blöndu þessara efna sem gera hana mjög rakadræga og girnilega. Fitted bleiur geta verið með vasa, föstu innleggi, lausu innleggi eða án innleggja og mismunandi er hvernig þær eru festar. ATH Fitted  bleiur eru ekki vatnsheldar og þurfa því bleiubuxur yfir (cover).
Helstu kostir: Mjúkar, rakadrægar og náttúruleg efni næst húðinni.
Cover (bleiubuxur)

Þvottaleiðbeiningar:  Harðar hægðir eru hristar úr bleiunni í klósettið. Gott er að skola óhreinar bleiur með köldu vatni og vinda/kreista þær vel og geyma þær svo í fötu þar til þær fara í þvott. 

Flestar bleiur má þvo á 60°C en ekki er mælt með að þvo á hærri hitastig en 60° og  gott er að skola með köldu á eftir. Notið einungis 1/4 - 1/3 af venjulegu magni af mildu þvottaefni sem er laust við öll ilmefni og kjarnaolíu. Bleiurnar má setja í þurrkara á lágan hita eða hengja þær út til þerris. ATH sólin er einn besti blettaeyðir  sem völ er á.


Alls EKKI nota mýkingarefni eða bleikiefni, það skemmir microfleecið (innra byrði bleiunnar), gerir það vatnshelt auk þess er það slæmt fyrir umhverfið og húð barnsins.

Ný innlegg verður að þvo sér fyrstu 3-4 skiptin til að ná úr þeim olíur sem getur valdið leka í vasableium, eftir það má þvo innleggin með hinum bleiunum.
Einnig getur tekið nokkra þvotta að ná upp fullri rakadrægni í innleggjunum.
Vörur í kynningu
JJ Cole Blue Bubble
1 711 ISK
Bleikir m/kórónu
2 870 ISK
Vital ID (Öryggis armband) grænt camo
2 470 ISK
Vörukarfa
Vörur í vörukörfu: 0
Samtals:
0 ISK
Vörukarfa
Frétt
27-06-2010
Nýtt hjá Snilldarbörnum!!!!!
The Mexican Bola
Lesa meira...
:: Allar fréttir
Slóðir